Útskrift 10. bekkjar í Vallaskóla 2019

Skólaslit

Dagskrá skólaslita í 10. bekk hófst að venju með ávarpi skólastjóra Vallaskóla, Guðbjarts Ólasonar. 

Í ár sem er 17. starfsár Vallaskóla voru útskrifaðir 66 nemendur. Einnig voru kvaddir fastráðnir starfsmenn; þau Guðmundur Baldursson, Pétur Önund Andrésson, Ástrós Rún Sigurðardóttir og Magneu Bjarnadóttur. Fengu þau viðurkenningu fyrir farsælan starfsferil.  Dagskrárstjórn var í umsjón Þorvalds H. Gunnarssonar, aðstoðarskólastjóra.

Viðurkenningar voru veittar fyrir góðan árangur í námi.

Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju og óskum þeim velfarnaðar í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur.

Nú vorar og sólþýðir vindar blása.
Úr vetrarins dróma raknar.
Nú yngist heimur og endurfæðist,
og æskuglaður hann vaknar.

Stefán frá Hvítadal