Útileikfimi

Það fylgir fyrstu dögum skólaársins að íþróttatímarnir fara fram úti í góða veðrinu. Nemendur í 2.-10. bekk eiga sem sagt að byrja í útiíþróttum eða útileikfimi frá og með morgundeginum, fimmtudaginn 23. ágúst sem hér segir:

2.-4. bekkur er í útiíþróttatímum til 7. september.

 5.-10. bekkur er til 14. september.

• Nemendur verða að koma með fatnað sem hentar til íþróttaiðkunar úti, þ.e.a.s. vera með föt til skiptanna.

• Íþróttaskór eru nauðsynlegir.

• Allir þurfa að muna að klæða sig eftir veðri.

Með kveðju frá íþróttakennurum Vallaskóla.