Starfs- og foreldradagur

Kæru fjölskyldur nemenda Vallaskóla

Framundan er starfsdagur og foreldradagur 2. og 3. nóvember.

Á báðum þessum dögum verða foreldraviðtöl.

Vegna Covid-19 munu viðtölin að þessu sinni fara fram í síma eða í fjarfundarbúnaði. Tímapantanir fara eingöngu fram í Mentor (sjá nánar upplýsingar frá umsjónarkennurum).

Opnað verður fyrir viðtalspantanir í Mentor mánudaginn 26. október kl. 14:00 en það lokar svo fyrir skráninguna fimmtudaginn 29. október kl. 16:00.

Lengd hvers viðtals er áætluð 10-15 mínútur (nema annað hafi verið ákveðið).

Eins og áður hvetjum við forráðamenn að ræða líka við aðra kennara en umsjónarkennara sem einnig verða til viðtals þessa daga. Vinsamlegast hafið þá samband við viðkomandi deildarstjóra.

Með kærri kveðju.
Starfsfólk Vallaskóla