Skólasetning Vallaskóla 2020-2021

Skólasetning verður í íþróttahúsi Vallaskóla mánudaginn 24. ágúst. Setningin verður með óhefðbundnum hætti vegna COVID-19.

Vegna fjöldatakmarkana er ekki gert ráð fyrir þátttöku foreldra/forráðamanna við skólasetningu.

Nemendur og forráðamenn í 1. bekk (árgangur 2014) fá sérstaka viðtalsboðun eins og áður.

Kl. 09:00          2. – 3. bekkur, árgangur 2013 og 2012.

Kl. 10:00          4. – 6. bekkur, árgangar 2011, 2010 og 2009.

Kl. 11:00          7. bekkur, árgangur 2008.

Kl. 13:00          8. – 10. bekkur, árgangar 2007, 2006 og 2005.