SAFT – fræðsla fyrir nemendur í 5.-6. bekk

Fulltrúi SAFT kom í heimsókn í dag (mánudaginn 15.5.2017) og fræddi nemendur í 5.-6. bekk Vallaskóla um örugga netnotkun. (Mynd með frétt af www.saft.is)

Fræðsla fyrir foreldra og forráðamenn verður á morgun (þriðjudaginn 16.5.2017), á sameiginlegum foreldrafundi fyrir skólana á Selfossi, í Sunnulækjarskóla frá kl. 17:30-19:00. Enn fremur er foreldrafundur á Stokkseyri miðvikudaginn 17. maí kl. 17:30-19:00

Erindi fyrir foreldra
Í fræðsluerindinu er farið yfir einkenni tælingarmála og hvað beri að varast í samskiptum við ókunnuga, hvað sé hægt að gera ef grunur vaknar um tilraun til tælingar og hvert sé hægt að leita.

Eins fá foreldrar fræðslu um birtingarmyndir rafræns eineltis og alvarlegar afleiðingar óvarlegra samskipta og myndbirtinga á netinu.

Farið verður yfir slæm áhrif ofnotkunar á tölvum og neti auk þess sem bent er á leiðir til að koma netnotkun í jákvæðari farveg.

Einnig verður fjallað um ýmsar tæknilegar lausnir, eins og síur, öryggisforrit og fleira.

Erindi fyrir nemendur:
Í fræðsluerindinu er farið yfir einkenni tælingarmála og hvað beri að varast í samskiptum við ókunnuga, hvað sé hægt að gera ef grunur vaknar um tilraun til tælingar og hvert sé hægt að leita. Eins fá börnin fræðslu um alvarleika rafræns eineltis og óvarlegra samskipta og myndbirtinga á netinu, farið verður yfir slæm áhrif ofnotkunar á tölvum og neti auk þess sem hvatt er til jákvæðrar og ábyrgrar netnotkunar. Fræðslan er lifandi og hvatt er til þátttöku nemenda. Stuðst er við stutt myndbönd sem að lýsa ýmsum vandamálum sem komið geta upp með óvarlegri netnotkun.