Opið hús í MR (fyrir nemendur í 10. bekk)

Til nemenda og forráðamanna nemenda grunnskóla er hafa áhuga á að koma í heimsókn í MR á vormisseri 2017.

Boðið er í heimsókn í MR á þriðjudögum kl.15 eftirfarandi daga:
7. febrúar, 14. febrúar, 21. febrúar, 28. febrúar og 7. mars.

Náms- og starfsráðgjafi skólans kynnir nám og nemendur kynna félagslíf skólans. Einnig verður farið í gönguferð um húsnæðið. Heimsóknin tekur um það bil 60 mínútur. Hægt er að taka á móti um það bil 60 manns í hvert skipti þannig að nauðsynlegt er að bóka heimsókn. Hafið samband við skrifstofu skólans í síma 5451900.

Við minnum einnig á opið hús í MR laugardaginn 11. mars kl. 14-16.
Dagný Broddadóttir
Náms- og starfsráðgjafi
Menntaskólinn í Reykjavík
Villa nova, Bókhlöðustíg 7.
Sími 5451930  gsm 7870768