Olweus í 10 ár

Frábært málþing, helgað Olweusaráætluninni á Íslandi, var haldið í dag föstudag, 22. nóvember. Yfir 90 þátttakendur mættu til leiks, þar á meðal tveir fulltrúar Vallaskóla, þeir Jónas Víðir Guðmundsson kennari og Þorvaldur H. Gunnarsson deildarstjóri eldri deildar. Vallaskóli hefur verið með í Olweusaráætluninni allt frá innleiðingu hennar fyrir 10 árum (frá skólaárinu 2002-2003).

Dagskráin var ríkuleg. Erindin voru fróðleg og vönduð. Og þá ekki síður málstofurnar. Eins og Þorlákur Helgason, verkefnastjóri Olweusaráætlunarinnr á Íslandi, segir: ,,Olweusaráætlunin er í góðum höndum!“. Sjá betur á heimasíðunni www.olweus.is .

Vakin er athygli á þvíað viðtöl sem tekin vou upp um morguninn á málþinginu verða flutt í þættinum Sjónmáli á mánudaginn milli 11 og 12 – á Rás 1. Þeir sem missa af því geta örugglega heyrt þetta allt á vef RÚV.

 

Hér að neðan má sjá dagskrá þingsins:

 

„Við höfum gengið til góðs“

Opið málþing í Neskirkju og Hagaskóla föstudag 22. nóvember kl. 9-16.

Olweusaráætlunin fagnar áratug á Íslandi. Við viljum líta yfir farinn veg og miðla af reynslu. Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa á velferð. Verið öll velkomin.

Málþingsstjóri: Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Í slandi

Við opnum klukkan 8.20 með kaffi og spjalli í safnðarheimilinu (gengið inn að vestanverðu).

9:00 Setning og upphitun.

9:10 Ávarp. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.

Dagskrárkynning.

9:30 Við höfum gengið til góðs. Olweusaráætlunin. Árangur og ávinningur. Niðurstöður eineltisrannsókna 2006-2012.

Reidar Thyholdt, framkvæmdastjóri Olweus International, kynnir (á ensku). Þorlákur H. Helgason, framkvæmdastjóri Olweusaráætlunarinnar á Íslandi.

10:10 „Ég held að lífið væri auðveldara ef maður væri strákur.“ Erfið samskipti og einelti stúlkna.

Ingibjörg Auðunsdóttir, sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og

Helga Halldórsdóttir, deildarstjóri og meistaranemi.

10:50 Ávaxtahlé.

11:10 Sáttmáli gegn einelti í heilu sveitarfélagi. Það tekur heilt þorp að ala upp barn. Helga Tryggvadóttir, verkefnastjóri í Grunnskóla Vestmannaeyja.

11:25 Leikir í frímínútum – forvörn gegn einelti Inga Lára Sigurðardóttur, verkefnastjóri í Vinaliðaverkefni, Skagafirði.

11:40 Olweusaráætlunin í Vesturbænum (Rvk.). Verkefnastjórar úr vesturbænum í panel.

12. 00 Olweus undir Jökli. Magnús Þór Jónsson, skólastjóri Grunskóla Snæfellsness.

12:15 Matarhlé.

13:15 Málstofur.

Sjá sér dagskrá.

15:30 Léttar veitingar.

16:30 Kærar þakkir.

Unnið verður í málstofum eftir hádegi þar sem til umræðu verða efni tengd erindum sem flutt voru fyrir hádegi auk nýrra viðfangsefna. Gert er ráð fyrir tveimur lotum eftir hádegi. Skipting gæti breyst í kjölfar vals.

ÞHH