Lopabekkurinn

7. HST hlaut í dag, bóndadag, titilinn lopabekkurinn. Þessir krakkar eru gríðarlega metnaðarfullir að sögn Bryndísar Sveinsdóttur stuðningsfulltrúa þegar kemur að sérstökum dögum eins og til dæmis bleikum degi og öskudegi ásamt fleirum. Verðlaunin voru ekki af verri endanum. Fengu krakkarnir að fara fremst í röðina í mötuneytinu í hádeginu þar sem þau gæddu sér á slátri með bestu lyst.

Mynd: Vallaskóli 2017 (BS). 7. HST.