Lausar stöður í Vallaskóla 2020-2021

 

Lausar stöður fyrir skólaárið 2020-2021

  • Umsjónarkennarar á yngsta stigi (1.-4. bekkur), miðstigi (5.-7. bekkur) og efsta stigi (8.-10. bekkur), 100% stöður.
  • Kennarar í leiklist, 2 stöður (60% og 100% staða).
  • Tónmenntakennari á yngsta stigi, 46% staða.
  • Náms- og starfsráðgjafi (100% staða).

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki.

Í Vallaskóla eru um 640 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is.

Sótt er um stöðuna á vef Sveitarfélagsins Árborgar, http://starf.arborg.is.

Upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri (gudbjartur@vallaskoli.is).

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2020 og ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst 2020. Störfin henta jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 9 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.