Kynningarfundur fyrir 10. bekk

Fimmtudaginn 27. janúar kl. 18:00-19.00 verður kynningarfundur með námsráðgjöfum Vallaskóla, þeim Sólveigu R. Kristinsdóttur, Eydísi Kötlu Guðmundsdóttur, fulltrúum Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans að Laugarvatni.

Fundarefni er nám að loknum grunnskóla. Kynnt verða inntökuskilyrði og námsbrautir framhaldsskólanna og fyrirspurnum svarað. Hvor skóli fær um 20-25 mínútur í kynninguna og reiknað er með 5 mínútum til að svara fyrirspurnum.


Fundurinn er mjög mikilvægur fyrir nemendur 10. bekkjar og forráðamenn þeirra. Hann verður í Austurrými Vallaskóla, gengið er inn frá Engjavegi.