Komdu að vinna með okkur!

Komdu að vinna með okkur!

Vallaskóli – Sveitarfélaginu Árborg, íþróttakennsla

Íþróttakennara vantar í íþróttakennarateymi Vallaskóla, 100% staða.

Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með mikla hæfni í mannlegum samskiptum, góða íslenskukunnáttu og brennandi áhuga á grunnskólastarfi. Reynsla af teymisvinnu er mikilvægur eiginleiki. Viðkomandi þarf að hafa kennsluréttindi grunnskóla.

Í Vallaskóla eru yfir 640 nemendur í 1.-10. bekk og yfir 100 starfsmenn, sjá www.vallaskoli.is.

Sækja skal um starfið á starfavef Árborgar, starf.arborg.is . Nánari upplýsingar veitir Guðbjartur Ólason skólastjóri – gudbjartur@vallaskoli.is eða í síma 4805800.

Umsóknarfrestur er til 27. október 2020. Ráðið verður í starfið frá og með 1. nóvember nk. Starfið hentar jafnt körlum sem konum. Launakjör fara eftir kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 9 þúsund íbúar, þar af um 2000 börn í fimm leikskólum og þremur grunnskólum. Í sveitarfélaginu er unnið að styrkingu heildstæðrar nærþjónustu við börn, foreldra og skóla. Lögð er áhersla á faglega forystu í anda lærdómssamfélagsins, snemmtæka íhlutun, samstarf skóla og stofnana um umbótastarf og þróun úrræða fyrir börn. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið, fjölskyldusvið og Skólaþjónustu Árborgar má finna á www.arborg.is.