Komdu á leikrit í kvöld!

Leiklistarval 10. bekkjar hefur síðustu daga verið að sýna verkið Last Friday Night (Síðasta föstudagskvöld). Verkið er frumsamið af nemendum sjálfum og byggt á lagi eftir söngkonuna Katy Perry sem ber sama nafn og leikritið. Allir nemendur frá 6. til 10. bekk hafa nú séð leikritið og viðtökurnar hafa verið virkilega góðar. Fimmtudagskvöldið 10. maí verður lokasýning en sú sýning er opin öllum. Sýningin er í kjallaranum í Vallaskóla og hefst klukkan 20:15 og er öllum velkomið að mæta. Gengið er inn Sólvallameginn á sama stað og farið er upp í stúku á íþróttaviðburði. 10. bekkur hvetur allt áhugafólk um leikhús að koma og sjá, sýningin er rúmlega 30 mínútna löng. Miðaverði er stillt í hóf.