Forvarnadagurinn

Forvarnadagurinn í Sveitarfélaginu Árborg miðvikudaginn 2. október

Forvarnadagurinn kallar á aðkomu nemenda í 9. bekk í öllum grunnskólum landsins. Dagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Landlæknisembættið, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta.

Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá vímuefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

Líkt og undanfarin ár verður 9. bekkingum í Sveitarfélaginu Árborg boðið upp á sameiginlega dagskrá, sem unnin er í samstarfi Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Sunnulækjarskóla, Vallaskóla, Umf. Selfoss og félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz. Markmið með sameiginlegri dagskrá er að standa fyrir metnaðarfullum viðburði á forvarnadeginum, að hugsa heildstætt í tómstunda- og skólastarfi og efna til hópeflingar og samstöðu meðal ungmenna í sveitarfélaginu. Nemendur sem taka þátt eru um 150 talsins.