Fjölbreytt litlu jól

Þá er komið jólafrí. Skemmtunum á litlu jólum lokið. Litlu jólin eru haldin fjórum sinnum í Vallaskóla, þ.e. hjá 5.-6. bekk, 7. bekk, 8.-10. bekk og svo í morgun hjá nemendum í 1.-4. bekk.

Atriði komu frá hverjum árgangi og flutt með miklum myndarbrag. Að venju sáu nemendur í 5. bekk, kennarar og stuðningsfulltrúar þeirra um jólaguðspjallið. Foreldrar og forráðamenn mættu vel á viðburðina og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Hér má sjá nokkrar myndir frá litlu jólunum á miðstigi og yngsta stigi. 

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á árinu 2017.

Sjáumst hress í skólanum aftur þriðjudaginn 3. janúar (kennt skv. stundatöflu).

Starfsfólk Vallaskóla.

Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). Jólaguðspjallið og 5. bekkur í íþróttasalnum.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). 6. bekkur.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). 6. bekkur.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). 6. bekkur.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). 7. bekkur.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). 7. bekkur.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). Jólaguðspjallið og 5. bekkur í íþróttasalnum.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). Jólaguðspjallið og 5. bekkur í Austurrýminu.
Mynd: Vallaskóli 2016 (ÞHG). Litlu jólin hjá 1.-4. bekk í íþróttasalnum.