Fikta, smakka, upplifa

Íslandsmót iðn- og verkgreina verður haldið dagana 16. – 18. mars 2017 og fer fram í Laugardalshöll í Reykjavík.

Prófaðu-svæði!

Gera má ráð fyrir að um 150 keppendur taki þátt í Íslandsmótinu og keppt verði í 21 iðngrein. Nokkrar greinar til viðbótar verða með kynningu á störfum en alls taka 27 iðn- og verkgreinar þátt  í ár. Fagreinarnar bjóða einnig upp á „Prófaðu“ svæði þar sem gestir fá að fikta, smakka og upplifa. Samhliða Íslandsmótinu verður kynning á framhaldsskólum landsins og námsframboði þeirra.

Verkiðn – Skills Iceland eru samtök sem halda utan um Íslandsmót iðn- og verkgreina. Þau voru stofnuð árið 2010 og hafa síðan þá haldið Íslandsmót árin 2010, 2012 og 2014. Á þessum mótum hafa um 150 keppendur tekið þátt í um 20 iðngreinum.

8 þúsund grunnskólanemendur

Von er á um 8 þúsund grunnskólanemendum í 9. – 10. bekk alls staðar af landinu í Höllina til að kynna sér námsmöguleika og fjölbreytni iðngreina. Þessi heimsókn er hugsuð sem liður í náms- og starfsfræðslu þessara nemenda og einn liður í að styrkja nemendur í að taka upplýsta ákvörðun um náms- og starfsval. Nemendur í 9. og 10. bekk Vallaskóla fara í heimsókn á vegum skólans föstudaginn 17. mars frá kl. 8:10 (brottför) -12:30 (heimkoma).

Fjölskyldutími

Á laugardeginum eru fjölskyldur sérstaklega velkomnar. Gefst þá einstakt tækifæri til að snerta og upplifa ýmislegt skemmtilegt sem snertir nám og störf í iðn- og verkgreinum. Team Spark kynnir rafmagnsbíl og einnig verður í boði að smakka upp á kræsingar sem útbúnar hafa verið í keppninni.  

Heimasíða mótsins

Fésbókarsíða

Mótið fer fram í Laugardalshöll og er opið fyrir áhorfendur sem hér segir:

  • Fimmtudaginn 16. mars kl. 9 – 16

  • Föstudaginn 17. mars kl. 9 – 16

  • Laugardaginn 18. mars kl. 10 – 14

    • Laugardagurinn verður fjölskyldudagur, fræðsla og fjör

Allir velkomnir – enginn aðgangseyrir!