9. og 10. bekkur fer á Eiðinn/Frestað fram á þriðjudaginn 13. desember

Mennta- og menningarmálaráðuneytið og RVK Studios bjóða öllum grunnskólanemendum í 9. og 10. bekk á kvikmyndina Eiðurinn eftir Baltasar Kormák. Tilefnið er ósk ráðamanna um að efla forvarnir gegn vímuefnaneyslu ungs fólks.

 

Við í Vallaskóla munum fara á sýninguna nk. föstudag 9. desember og fylgja eftirfarandi tímasetningum:

Kennt í fyrsta tíma skv. stundaskrá kl. 8:10.

Mæting í Selfossbíó kl. 8:50.

Sýning frá kl. 9:00-10:40

Samræður við Baltasar Kormák í c.a. 20 mínútur.

Áætluð heimferð aftur í Vallaskóla frá Selfossbíó kl. 11:00-11:10.