20. Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum

Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 20. sinn mánudaginn 28. maí 2018. Keppnin fer fram á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.

Klukkan 16:30 hefst keppni í 1.- 2.bekk, klukkan 17:15 hefst keppni í 3.-4.bekk. Spjótkast hjá strákum í 7.-10.bekk hefst klukkan 16:30 og spjótkast hjá stelpum í 7.-10.bekk hefst klukkan 17:15. Keppni í spretthlaupi, kúluvarpi og langstökki hjá 5.-10.bekk hefst klukkan 18:00.

 

Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum:

1.     bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)

2.     bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)

3.     bekkur- 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)

4.     bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)

5.     bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp(2kg)

6.     bekkur – 60m hlaup, langstökk og kúluvarp (2kg/3kg)

7.- 8.  bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp(3kg/4kg) og spjótkast (400gr/600gr)

9.-10. bekkur – 100m hlaup, langstökk, kúluvarp (3kg/5kg) og spjótkast  (600gr/700gr)

 

Allir í 1. – 4. bekk fá þátttökuverðlaun en veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 5.- 10. bekk.

Hver keppandi í 1.- 4. bekk fær 2 tilraunir bæði í langstökki og kúluvarpi.  Í 5.-10. bekk fær hver keppandi 3 tilraunir í kúluvarpi og langstökki auk þess sem keppendur í spjótkasti fá 3 tilraunir.

Sú nýjung er í ár að keppendur í 1.-4.bekk skrá sig á staðnum, en keppendur í 5.-10.bekk þurfa að skrá sig minnst tveimur dögum fyrir keppni.

Skráningum skal skila eigi síðar en mánudaginn 16. maí  á netfangið helgihar@simnet.is  eða til íþróttakennara/ritara eða á viðburðarsíðu mótsins á facebook (Grunnskólamót Árborgar)

Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í símum 482-3182 / 892-7052 eða á netfanginu helgihar@simnet.is