Vika 43

43aVika 43, forvarnaverkefni Samstarfsráðs um forvarnir, hófst mánudaginn 20. október.

 

Í vikunni er kastljósi beint að ýmsu er varðar félagsstarf meðal barna og ungmenna, lífsstíl og sjálfsmynd og vakin athygli á því góða starfi með ungu fólki sem lítur að forvörnum í nærsamfélaginu (heimabyggð). Alla daga vikunnar verður vakin athygli á virkri þátttöku barna og ungmenna í hvers kyns íþrótta-, félags- og tómstundastarfi. Á umliðnum árum hefur þátttaka í skipulögðu félagsstarfi stóraukist með öflugum félagasamtökum og bættri aðstöðu, er það ótvírætt grunnurinn í þeim góða árangri sem náðst hefur í forvörnum.

 

Með eflingu félagasamtaka og félagsstarfs sem stendur börnum og foreldrum þeirra til boða hefur það einnig gerst að úrræðin hafa færst nær þátttakendum og heimilum þeirra og þannig fært fólkinu í heimabyggð meiri ábyrgð og hlutdeild í forvarnastarfi.  Árangurinn er eftir því svo góður að eftir er tekið innanlands og utan.

 

Heimasíða verkefnisins: www.vika43.is