Umsóknir í vinnuskóla Árborgar 2017

Opnað hefur verið fyrir umsóknir unglinga í vinnuskóla Árborgar 2017 og er umsóknarfrestur til og með mánudeginum 15. maí. Um er að ræða einstaklinga fædda á árunum 2001-2003.

Það eru næg störf í boði fyrir unglingana en við skorum á foreldra að virða umsóknarfrestinn og drífa af umsóknarferlið. Varðandi þau ungmenni sem eru ekki viss um hvað þau ætli að taka sér fyrir hendur í sumar er betra að sækja um í vinnuskólann og draga svo umsóknina tilbaka en að reyna að sækja um eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Sótt er um á vefsvæðinu Mín Árborg á slóðinni: https://ibuagatt.arborg.is/

Við minnum á að við gerð umsókna að nýta athugasemdadálkinn. Í þann dálk skulu koma fram upplýsingar um frí fyrir unglinginn á vinnutímabilinu, ofnæmi, sérþarfir hvers konar o.s.frv. Ítarlegri upplýsingar má finna á heimasíðu sveitarfélagsins: http://www.arborg.is/skolar/vinnuskoli-arborgar/

 

Helstu upplýsingar fyrir hvern árgang eru eftirfarandi:

Börn fædd 2003

  • Vinnutímabil: 12. júní – 20. júlí
  • Vinnutími 8:30 – 12:00 í 6 vikur. Frí á föstudögum
  • Samtals 84 vinnustundir – 3,5 klukkutímar á dag
  • Fjölbreytt verkefni
  • Raðað verður í hópa í samráði við starfsmenn skólanna
  • Tekið verður tillit til búsetu eftir því sem hægt verður
  • Tímakaup er 567 kr. á tímann
  • Meðmælabréf  – allir starfsmenn fá afhent meðmælabréf á lokadegi vinnuskólans 20. júlí

Börn fædd 2002

  • Vinnutímabil: 12. júní – 20. júlí
  • Vinnutími 8:30 – 12:00 og 13:00 – 16:00 í 6 vikur. Klukkutíma hádegismatarhlé. Frí á föstudögum
  • Samtals 156 vinnustundir – 6,5 klukkutímar á dag
  • Fjölbreytt verkefni
  • Hægt að sækja um vinnu við verkefnið Götuleikhús (13. – 30. júní)  og vinnuskólablaðið Grænjaxl (4. – 21. júlí)
  • Raðað verður í hópa í samráði við starfsmenn skólanna
  • Tekið verður tillit til búsetu eftir því sem hægt verður
  • Tímakaup er 677 kr. á tímann
  • Meðmælabréf  – allir starfsmenn fá afhent meðmælabréf á lokadegi vinnuskólans 20. júlí

Börn fædd 2001

  • Vinnutímabil: 12. júní – 20. júlí
  • Vinnutími 8:30 – 12:00 og 13:00 – 16:00 mánudaga til fimmtudaga í 6 vikur. Á föstudögum er unnið 8:30 – 12:00. Klukkutíma hádegismatarhlé.
  • Samtals 173,5 vinnustundir – 6,5 klukkutímar á dag nema á föstudögum þegar unnið er 3,5 klukkutíma
  • Fjölbreytt verkefni
  • a. hjá íþróttafélögum og öðrum æskulýðsfélögum.
  • Raðað verður í hópa í samráði við starfsmenn skólanna
  • Tímakaup er 850 kr. á tímann
  • Meðmælabréf  – allir starfsmenn fá afhent meðmælabréf á lokadegi vinnuskólans 20. júlí

Nánari upplýsingar veita Jónína Ósk í s: 480-1951 / vefpóstur: joninaosk@arborg.is og Gunnar í s: 480-1950 / vefpóstur: gunnars@arborg.is

 

Kveðja,

Gunnar E. Sigurbjörnsson

Tómstunda- og forvarnarfulltrúi Árborgar

480-1950 / 820-4567

gunnars@arborg.is