Mötuneyti
Mötuneyti skólans þjónar nemendum og starfsmönnum skólans. Stórt og velbúið eldhús mötuneytisins er staðsett á Sólvöllum og eru skólamáltíðir fyrir allan skólann eldaðar þar. Einnig eldar mötuneytið allar skólamáltíðir fyrir Barnaskólann Eyrabakka Stokkseyri.
Nemendur matast eftir atvikum í borðsölum skólans á Sólvöllum eða á skólavistun (Bifröst). Mötuneyti nemenda að Sólvöllum , sem er með sæti fyrir um 120 nemendur, er opið á morgnana kl. 9:30-10:00 og í hádegishléum nemenda á tímabilinu 12.00 - 13.20. Í matsalnum eru samlokugrill og örbylgjuofnar sem nemendur hafa aðgang að. Nemendur á Sólvöllum, sem kjósa að koma með nesti að heiman, geta notið þess í matsalnum.
Þeim nemendum í Sandvík, sem ekki eru á Skólavistun Vallaskóla, en eru í mat, er fylgt yfir á Sólvelli af starfsmanni skólans í hádeginu.
Starfsfólk skólans er við gæslu í mötuneytinu og leggur skólinn áherslu á að nemendur hafi í heiðri almenna borðsiði og sýni prúðmannlega framkomu. Foreldrar eru beðnir um að brýna fyrir börnum sínum að ganga vel um mötuneyti og ganga skólans. Slæm umgengni getur útilokað viðkomandi nemendur frá afgreiðslu.
Nemendur þurfa að vera í áskrift að morgunhressingu og hádegismat. Gíróseðlar eru sendir til foreldra nema um heimabanka sé að ræða
Yfirmatráður er Hjördís Traustadóttir.
Flýtileiðir
Mynd







