Skólareglur
Í Vallaskóla grundvallast samskipti á virðingu, kurteisi og tillitsemi. Allir eiga rétt á vinnufriði.
1. Í Vallaskóla er námið stundað af kostgæfni. Við mætum stundvíslega í allar kennslustundir, vel undirbúin og með öll námsgögn meðferðis.
2. Góð umgengni er í hávegum höfð í Vallaskóla. Við göngum öll þrifalega um og berum virðingu fyrir eigum skólans og hvers annars. Við röðum skóm, göngum frá útifatnaði og hirðum vel um námsbækur og önnur gögn.
3. Í Vallaskóla stýra kennarar vinnu nemenda í kennslustundum og nemendur fara að fyrirmælum þeirra og annars starfsfólks skólans á skólatíma.
4. Í Vallaskóla er lögð áhersla á heilbrigði og hollar lífsvenjur.
Hollt nesti er öllum mikilvægt. Neysla gosdrykkja og sælgætis er ekki leyfð. Neysla tóbaks og vímuefna er bönnuð.
5. Ætlast er til þess að nemendur séu á skólalóðinni á skólatíma.
Nemendur eru á ábyrgð foreldra/forráðamanna utan skólalóðar, bæði á leið úr og í skóla og einnig ef þeir yfirgefa skólalóð á skólatíma.
6. Í skólanum nota nemendur engin þau tæki og tól sem valda truflunum og óþægindum.
Notkun síma, geislaspilara og annarra hljómtækja er óheimil í kennslustundum nema með leyfi kennara. (Reiðhjól, línuskautar, hjólabretti og vélhjól eru ekki notuð á skólatíma).
7. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á verðmætum sem þeir koma með í skólann.
8. Yfirhafnir, húfur, skór og annar útivistarfatnaður er ekki notaður í kennslustundum innandyra.
9. Í ferðalögum og á skemmtunum á vegum skólans eru allar reglur skólans í fullu gildi, nema annað sé tekið fram.
Viðurlög við brotum á skólareglum
,,Foreldrar/forráðamenn bera frumábyrgð á uppeldi barna sinna. Á þeim hvílir sú skylda að börnin sæki skóla og að þau séu eins mótttækileg fyrir þeirri menntun sem skólinn annast og framast er unnt.” (Aðalnámskrá grunnskóla, almennur hluti, bls. 44).
Innan skólans er stöðugt unnið að því að bæta aga og auka aðhald í öllu starfi með það að markmiði að skólastarfið gangi snurðulaust fyrir sig. Skólinn lítur svo á að það sé sameiginlegt verkefni skólans og foreldra/forráðamanna að standa vel að því málefni. Ávallt skal tilkynna foreldrum/forráðamönnum ef beita þarf viðurlögum við skólareglum.
Lögmæt forföll skulu tilkynnt af forráðamanni nemenda til skrifstofu skólans til skráningar svo fljótt sem verða má. Ef skriflegra vottorða er krafist eru þau gild frá forráðamanni eða lækni. Tilkynningar um forföll nemenda eiga að jafnaði að berast skólanum samdægurs, ekki mörgum dögum síðar. Gleymi foreldri að tilkynna veikindi barns, en gerir það síðar þegar barnið hefur fengið fjarvist og óskar eftir leiðréttingu, gildir að jafnaði sú regla að komi tilkynning of seint, er barnið skráð með fjarvist. Umsjónarkennari metur aðstæður og ákveður hvort leiðréttinga er þörf.
Brottrekstur:
Við alvarleg og/eða ítrekuð brot á skólareglum getur þurft að grípa til tímabundinnar brottvísunar úr skóla, brottvísunar úr einstökum greinum eða brottvísunar um lengri tíma. Um brottvísun úr einstökum greinum eða brottvísunar í lengri tíma en nemur einum skóladegi gilda ákvæði stjórnsýslulaga.
Vinnureglur við beitingu viðurlaga
Viðurlög miðast fyrst og fremst við það að þau hjálpi nemandanum að bæta hegðun sína eða stöðu, eins og segir um í reglugerð um skólareglur nr. 270/2000, en þar segir orðrétt í 6. grein:
,,Nýta skal til fullnustu allar þær leiðir sem skólinn ræður yfir til að leita lausna og ráða bót á hegðun nemanda. Leita þarf allra mögulegra orsaka innan skólans til að viðurlög verði bæði markviss og komi nemandanum að gagni við að bæta hegðun sína.”
Vinnureglur:
Umsjónarkennari ber ábyrgð á og fylgist með því að umsjónarnemendur hans hlíti þeim viðurlögum sem ákveðin hafa verið. Brot á skólareglum verða skráð í Mentor. Viðurlög við skólareglum eiga við nemendur í 6. – 10. bekk. Foreldrar nemenda í 1. – 5. bekk eru látnir vita ef þeir gerast brotlegir við skólareglur. Mismunandi vinnureglur gilda eftir því hvaða regla er brotin.
Regla 1 - Ástundun.
Regla 2 - Umgengni .
Regla 3 - Verkstjórn starfsfólks.
Regla 4 - Heilbrigði og hollar lífsvenjur .
Regla 5 - Fjarvera frá skólalóð á skólatíma
Regla 6 - Tæki og tól sem valda truflunum .
Regla 7 - Verðmæti í skóla .
Nemendur bera ábyrgð á þeim verðmætum sem þeir kjósa að koma með í skólann og skólinn bætir ekki tjón á þeim verðmætum.
Regla 8 - Útivistarfatnaður
Ef nemendur koma í útifatnaði inn í kennslustundir er þeim gert að fara og setja hann á viðeigandi staði, á hanka, í skógeymslu, o.s.frv.
Ef nemandi neitar, kemur til reglu 3.
Aðrir en kennarar komi upplýsingum um brot til umsjónarkennara svo þeir geti skráð brotið.
Við alvarleg og ítrekuð brot á skólareglum getur þurft að grípa til tímabundinnar brottvísunar úr skóla, brottvísunar úr einstökum greinum eða brottvísunar um lengri tíma. Um brottvísun úr einstökum greinum eða brottvísunar í lengri tíma en nemur einum skóladegi gilda ákvæði stjórnsýslulaga.
Þar sem viðbrögð við brotum á agareglum eru samvinnuverkefni foreldra/forráðamanna og skóla væntir Vallaskóli þess að foreldrar/forráðamenn verði í góðu samstarfi með að framfylgja skólareglum og viðurlögum við þeim.
Reglur um GSM-notkun nemenda í Vallaskóla
Nemendum er leyfilegt að vera með og nota GSM-síma í Vallaskóla. Um notkun og meðferð gilda eftirfarandi reglur:
Símarnir eru á ábyrgð nemenda í skólanum. Tjón vegna þjófnaðar eða skemmda verður ekki bætt af hálfu skólans.
Á ferðalögum og í vettvangsferðum á vegum skólans geta nemendur haft með sér GSM-síma. Hinsvegar verða þeir að hlíta þeim reglum sem starfsfólk skólans setur þeim hverju sinni um notkun þeirra í ferðunum.
Í kennslustundum gilda eftirfarandi reglur:
Við brot á þessum reglum skal nemandi slökkva á síma sínum og afhenda hann umyrðalaust kennara. Foreldri þarf að sækja símann í skólann. Við síendurtekin brot og/eða misnotkun á GSM-símum geta skólastjórar bannað viðkomandi nemanda að vera með GSM-síma í skólanum í styttri eða lengri tíma.
