Starfsdagur mánudaginn 16. mars

Starfsdagur grunnskóla og frístundaheimila í Árborg nk. mánudag 16. mars

Vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga í grunnskólum Árborgar, í ljósi fyrirmæla heilbrigðisyfirvalda, mun áætlaður starfsdagur 18. mars færast til mánudagisins 16. mars nk. Því fellur almennt skólastarf niður nk. mánudag sem og frístundastarf yngstu barnanna. Starfsdagurinn verður nýttur af stjórnendum og starfsfólki til endurskipulagningar starfsins.

Kveðja

Starfsfólk Vallaskóla