Gegn einelti


 

Heimasíða Olweusaráætlunarinnar á Íslandi




Aðferð Olweusar gegn einelti var tekin upp í Vallaskóla á skólaárinu 2002-2003 og hefur verið farið eftir henni í meginatriðum síðan. Margir nýir starfsmenn hafa hafið störf við skólann síðan þá og nýir nemendur byrjað í skólanum og því er alltaf hyggilegt að rifja upp reglulega hvað felst raunverulega í Olweusarvinnunni.

Skólaárið 2008-2009 var eineltisteymi skólans stofnað sem starfar eftir Olweusaráætluninni og er ætlað að styrkja þá vinnu (sjá nánar hér að neðan).

Tilkynna einelti eða hafa samband við eineltisteymi. Senda póst.  Allar tilkynningar skoðast sem trúnaðarmál.



Hvernig við ætlum að ná árangri

Leitast er við að fá nemendur til að taka eindregna afstöðu gegn einelti með markvissri umfjöllun um einelti, t.d. um eineltishringinn og afleiðingar eineltis. Þetta er m.a. gert með því að halda bekkjarfundi hálfsmánaðarlega eða oftar. Einnig á hver einasti bekkur að setja sér bekkjarreglur sem höfða til ábyrgðar nemenda gagnvart eineltishegðun. Eitt dæmi um reglu sem tekur á daglegum samskiptum er regla sem gæti heitið: ,,Aldrei neinn einn!" Sá bekkur sem setur svona reglu og stendur við hana er sterkari forvörn en nokkuð annað.


Bætt upplýsingaflæði milli nemenda og starfsmanna skólans er mikilvæg leið til að sporna við einelti. 

Aukið upplýsingaflæði milli heimila og skóla er einnig mjög áríðandi því oft sýnir þolandi eineltis fyrstu merki um vanlíðan heima. Það er nauðsynlegt að umsjónarkennari eða skólayfirvöld fái sem fyrst ábendingar um einelti. Hröð og rétt viðbrögð skipta öllu máli.    

Starfsfólk skólans hittist reglulega á fundum til að finna bestu leiðirnar til þess að hindra einelti. Í því getur falist að vakta betur hættusvæði og koma ábendingum áleiðis milli þeirra sem brugðist geta við aðstæðum. Umfram allt er mikilvægt að skapa andrúmsloft þar sem einelti er alls ekki liðið. Hlýlegt og umhyggjusamt viðmót starfmanna, ásamt áherslu á góða framkomu nemenda, er það andrúmsloft sem dregur úr eineltismyndun samkvæmt kenningum Olweusar.

Lögð er fyrir nafnlaus könnun í rafrænu formi á hverju hausti í samstarfi við framkvæmdastjóra Olweusaráætlunarinnar á Íslandi. Niðurstöður úr könnunni eru kynntar og brugðist við í samræmi við þær.

Eineltisteymi Vallaskóla

Í eineltisteyminu eru fimm til sex lykilstarfsmenn: Verkefnisstjóri Olweusar, námsráðgjafar, tveir deildarstjórar og hjúkrunarfræðingur. Það starfar samkvæmt áætlun Olweusar gegn einelti.

Eineltisteymið á að samræma upplýsingar um eineltismál og bregðast við tilkynningum um slík mál. Enn fremur fylgir það málunum eftir og sér um að upplýsingastreymi sé í góðum höndum.

Eineltisteymið hefur sérstakt netfang sem birt er á heimasíðu skólans. Að auki er boðið upp á að hafa samband við námsráðgjafa á ákveðnum símatíma.

Eineltisteymið vinnur með þeim starfsmönnum sem koma að einstökum málum.

Eineltisteymið vinnur að forvörnum í skólanum. Það hvetur til þess að einelti sé upprætt og að upplýsingum um einelti sé komið til skila. Gefa skal út bækling um starfsemi eineltisteymisins.

Verkferill:



Nú fær teymið tilkynningu um einelti:

  • Það bregst við í samræmi við alvarleika samdægurs, strax ef einelti er staðfest. Ræður ráðum sínum ef einungis er um grun að ræða. Skrá skal stuttlega í dagbók nemenda um upphaf málsins.
  • Eineltisteymið skal gæta að trúnaði við nemendur og skrá upplýsingar samkvæmt nafnleynd.
  • Vinna með eineltismál gengur fyrir öllum öðrum verkum og skyldum lykilstarfsmanna.
  • Teymið vinnur samkvæmt eineltisáætlun skólans og virkjar hana þegar þess þarf (sjá hér að neðan).
  • Eineltisteymið yfirfer þær upplýsingar sem fyrir liggja um tilvikið. Unnið er í samstarfi við umsjónarkennari/ar þeirra nemenda sem hlut eiga að málinu. Það fær enn fremur til liðs við sig aðra starfsmenn sem koma að málum.
  • Teymið, í samvinnu við umsjónarkennara, setur fram áætlun um hvernig unnið verður í málinu. Velferð skjólstæðinga skiptir hér mestu. Teymið tekur að sér viðtöl við gerendur og þolendur í samráði við umsjónarkennara.
  • Tryggja skal nauðsynlega upplýsingaöflun og koma áleiðis upplýsingum til þeirra starfsmanna sem vakta eiga hlutaðeigandi.
  • Umsjónarkennari setur sig alltaf í samband við foreldra/forráðamenn og ræðir um gang mála.
  • Hluteigandi starfsmenn senda eineltisteyminu stutta skýrslu um gang mála (í tölvupósti, á miða eða í síma) samkvæmt þeirri áætlun sem fyrir liggur. Eineltisteymið ákveður hversu lengi upplýsingaöflunin stendur yfir. Foreldrar gerenda og þolenda eru enn fremur hvattir til að vinna sem best saman að lausn mála.
  • Eineltisteymið heldur fundi hálfsmánaðarlega og yfirfer upplýsingar um eineltismál og sker úr um hvort eineltisáætlun skólans skal áfram vera virk eða ekki í þeim málum sem unnið er með. Teymið endurskoðar áætlun um eineltismálið og gerir breytingar ef með þarf.
  • Eineltisteymið heldur utan um upplýsingar um hvert tilvik og skráir í skýrslu.
  • Þegar eineltismáli er lokað skal skýrslan vistuð á öruggum stað og stuttur útdráttur skráður í dagbók nemenda í Mentor.

Hvernig við vinnum með eineltismál, áætlun:

  • Þegar starfsmaður fær grun eða vitneskju um að nemandi verði fyrir einelti skráir hann tilvikið og kemur upplýsingunum áleiðis til umsjónarkennara eða eineltisteymis skólans.   
  • Umsjónarkennari kannar hvað liggur á bak við atvikið og fylgir málinu eftir með því að kanna hvort hliðstæð atvik hafi komið upp og þá hvar, hvernig, hvenær og af völdum hverra. Eineltisteymi skólans er strax gert viðvart og samstarf við það hefst.
  • Ef um endurtekið atferli er að ræða er málinu fylgt eftir með viðtölum við gerendur, þolendur og foreldra. 
  • Þátttakendur í eineltinu eru vaktaðir og ef það dugir ekki til, er gripið til annarra ráða sem m.a. hindra geranda í að leggja í einelti. Umsjónarkennari upplýsir forráðamenn gerenda um hvaða aðgerðir það eru.
  • Fylgst er með þeim sem fyrir eineltinu verða og þeir styrktir með bekkjarvinnu, stuðningi og viðtölum.
  • Ef ekkert af þessu dugir til er leitað eftir aðstoð sérfræðinga.

Endurteknar særandi athugasemdir, ofbeldi og útilokun frá athöfnum skólasystkina flokkast undir einelti. Oft gera nemendur sér ekki grein fyrir grimmdinni sem í hegðun þeirra felst og því eru upplýsingar góð leið til varnar gegn einelti. Gerum nemendur meðvitaða um rétta framkomu gagnvart félögum sínum.

Þuríður Una Pétursdóttir, verkefnisstjóri.

Námsráðgjafar: Eydís Katla Guðmundsdóttir – eydis@vallaskoli.is og Sólveig R. Kristinsdóttir – solveig@vallaskoli.is . Sími: 480 5800.