Skólavistun vegna 4. október

Kæru foreldrar/forráðamenn

Samkvæmt skóladagatali Vallaskóla verður haustþing kennara föstudaginn 4. október og því enginn skóli. Þann dag munum við hafa opið á skólavistun allan daginn, frá kl. 7:45 -17:15.

Sækja þarf sérstaklega um vistun fyrir þennan dag. Því viljum við biðja ALLA foreldra að skila bréfi (sjá hlekk) til okkar, hringja, eða senda tölvupóst í síðasta lagi mánudaginn 30. september nk.

Eyðublaðið má sjá hér.

Með kærri kveðju.

Starfsfólk Skólavistunar.