Skólasetning skólaárið 2017-2018

Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir þriðjudaginn 22. ágúst 2017. Skólasetning Vallaskóla fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla sem hér segir:

Kl. 10:00  Nemendur í 2.−5. bekk,  f. 2007−2010.

Kl. 11:00  Nemendur í 6.−10. bekk,  f. 2002−2006.

Gert er ráð fyrir stuttri samkomu í íþróttasal en síðan munu nemendur og foreldrar hitta umsjónarkennara.

Nemendur í 1. bekk (f. 2011) og forráðamenn þeirra eru boðaðir sérstaklega í viðtöl eins og þegar hefur verið tilkynnt.