Sjö keppendur frá Vallaskóla í úrslitum Pangea stærðfræðikeppninnar

Pangea er vel þekkt sem keppni í stærðfræði, haldin árlega í 20 evrópskum löndum og nú í fyrsta sinn á Íslandi. Gífurlegur fjöldi evrópskra ungmenna tekur þátt.

Pangea er skemmtileg og krefjandi keppni, ætluð nemendum í 8. og 9. bekk. Auk þess að auka áhuga á stærðfræði undirbýr keppni sem þessi ungt fólk fyrir stærri stærðfræðimót og hjálpar þeim að þróa getu sína til að hugsa og leysa flókin stærðfræðidæmi.

Úrslitakeppnin 2016 var haldin í Reykjavík 30. apríl sl. 35 bestu nemendur hvers árgangs kepptu til úrslita úr hópi 1000 nemenda úr 45 skólum.

40 nemendur úr Vallaskóla tóku þátt í fyrstu lotu keppninnar. 24 þeirra komust í aðra umferð og sjö nemendur komust alla leið í úrslit. Vallaskóli átti því 10% af öllum keppendum þegar kom að úrslitarimmunni. Það voru þau Benedikt Nökkvi Sigfússon 9. MIM, Elísabet Sandra Guðnadóttir 9. BA, Ágúst Máni Þorsteinsson 8. SAG, Hildur Helga Einarsdóttir 8. KH, Íris Ragnarsdóttir 8. SAG, Rúnar Baldursson 8. SAG og Unnur María Ingvarsdóttir 8. SAG. Þeim gekk öllum vel og mjög mjótt var á mununum á milli nemenda í efstu sætunum. Unnur María hreppti þriðja sæti í hópi 8. bekkinga og var hún aðeins tveimur stigum frá fyrsta sætinu. Frábær árangur hjá henni.

Við í Vallaskóla munum að sjálfsögðu taka þátt í keppninni að ári því þetta ferðalag er bæði búið að vera mjög skemmtilegt og lærdómsríkt.

Sigríður Anna Guðjónsdóttir, stærðfræðikennari.