Setning Vinnuskólans

VINNUSKÓLINN Í ÁRBORG 2014

Setning vinnuskólans fer fram fimmtudaginn 5. júní 2014 kl 20:00 – 21:00 í Fjallasal Sunnulækjarskóla

Kæri nemandi Vinnuskólans

Þér er boðið að koma ásamt foreldra/forráðamanni við setningu Vinnuskólans. Setningin fer fram í Sunnulækjaskóla fimmtudaginn 6.júní og byrjar kl 20:00.

Fyrsti vinnudagur er þriðjudaginn 10. júni 2014 og eiga krakkar á Selfossi að mæta í Félagsmiðstöðina Zelsíuz, Austurvegi 2b (kjallari).

Árgangur fæddur 2000 á að mæta klukkan 08:30

Árgangur fæddur 1999 á að mæta klukkan 09:00

Árgangur fæddur 1998 á að mæta klukkan 09:30

Krakkar á Eyrarbakka (allir árgangar) mæta við Búðarstíg 22 (Gamla Alpan húsið) klukkan 08:30

Krakkar á Stokkseyri (allir árgangar) mæta við áhaldahúsið við Eyrarbraut 41 klukkan 08:30

Kær kveðja

Starfsfólk Vinnuskólans.