SAFT og Sigga Dögg með fyrirlestur fyrir

Í dag fengu nemendur 9. og 10. bekkjar heimsókn frá kynfræðingnum Siggu Dögg. Voru fyrirlestrar hennar kynjaskiptir og var góður rómur kveðinn að því fyrirkomulagi.

 

Hér má nálgast upplýsingar um fyrirlesturinn: Upplýsingar um fyrirlestur.

 

Eins komu fulltrúar frá SAFT verkefninu og fræddu nemendur 6. bekkjar um öryggi á Internetinu. Upplýsingar má nálgast á heimasíðu SAFT.

 

Á morgun, miðvikudaginn 14. janúar, verður fyrirlestur fyrir foreldra allra barna í Árborg og verður hann haldinn í Sunnulækjarskóla og hefst kl. 17.30 og lýkur kl. 19.30.