SAFT – fræðsla fyrir fjölskyldur nemenda í 5. og 6. bekk

Fræðsla fyrir fjölskyldur nemenda í 5. og 6. bekk verður þriðjudaginn 16.5.2017 á sameiginlegum foreldrafundi fyrir skólana á Selfossi, í Sunnulækjarskóla frá kl. 17:30-19:00. Enn fremur er foreldrafundur á Stokkseyri miðvikudaginn 17. maí kl. 17:30-19:00

Erindi fyrir foreldra
Í fræðsluerindinu er farið yfir einkenni tælingarmála og hvað beri að varast í samskiptum við ókunnuga, hvað sé hægt að gera ef grunur vaknar um tilraun til tælingar og hvert sé hægt að leita.

Eins fá foreldrar fræðslu um birtingarmyndir rafræns eineltis og alvarlegar afleiðingar óvarlegra samskipta og myndbirtinga á netinu.

Farið verður yfir slæm áhrif ofnotkunar á tölvum og neti auk þess sem bent er á leiðir til að koma netnotkun í jákvæðari farveg.

Einnig verður fjallað um ýmsar tæknilegar lausnir, eins og síur, öryggisforrit og fleira.