Staðsetning
Skólasafnið er staðsett á tveimur stöðum.
Aðalsafnið er í 240fm húsnæði á Sólvöllum, miðsvæðis í skólanum. Rýmið er sérstaklega hannað sem safnhúsnæði og var tekið í notkun haustið 2002. Það er bjart og aðlaðandi og vel búið húsgögnum. Tölvuver er staðsett við hliðina á safninu.
Í Sandvík er útibú frá safninu í einni kennslustofu. Því er ætlað að sinna þörfum yngstu nemendanna í 1.-4. bekk.
Hlutverk
Skólasafninu er ætlað að vera miðstöð upplýsinga, þekkingar og menningar innan skólans. Það er eitt af meginhjálpartækjunum í skólastarfinu við að stuðla að upplýsinga- og menningarlæsi nemenda, jafnframt því að hvetja þá til lesturs sér til gagns og gamans.
Safnkostur
Á safninu eru skráð rúmlega 10.000 eintök. Má þar finna fræðibækur, skáldrit, bekkjarsett af skáldsögum, kennarahandbækur, tímarit, kennsluforrit o.fl.
Allur safnakostur safnsins er skráður í bókasafnskerfið Gegni, sem er miðlægt skráningarkerfi íslenskra bókasafna.
Kennsla
Á safninu fer fram kennsla í upplýsingamennt. Nánari skýringar er að finna í námskrá einstakra árganga.
Opnunartími
Safnið er opið á skólatíma.
Að hausti er sett upp stundaskrá safnsins, þar sem fram kemur hvenær þar fer fram kennsla í upplýsingamennt. Mikilvægt er að nemendur séu ekki sendir á safnið á þeim tímum.
Útlán
Nemendum og starfsfólki skólans er heimilt að fá lánaðar bækur á safninu. Nemendur geta fengið lánaðar tvær bækur í senn, eina til að lesa í skólanum og aðra til að lesa heima. Útlánatími er 30 dagar og hægt að endurnýja útlán ef nemandi hefur ekki lokið við bók á þeim tíma. Fræðibækur eru aðeins til útláns innan skólans.
Starfsmenn
Pétur Önundur Andrésson er umsjónarmaður safnsins.
Skólasafn

