Náms- og starfsráðgjöf

Náms- og starfsráðgjöf er veitt jafnt einstaklingi sem hóp. Markmið með ráðgjöfinni er að nemendur efli og þroski þekkingu á sjálfum sér, námsleiðum, störfum og atvinnulífi til að auðvelda ákvörðun um nám eða starf að loknum grunnskóla. 

Náms– og starfsráðgjafi aðstoðar nemendur m.a. við: 

  • Upplýsingaöflun um skóla, nám, störf og atvinnulíf
  • Könnun á áhugasviðum, stuðst við Áhugakönnunina ,,Í leit að starfi”
  • Finna út styrkleika, gildismat og færni sína
  • Að kenna leikni við ákvarðanatöku