List fyrir alla – Sögur af nautum

Í morgun var nemendum í 1.-4. bekk boðið á leiksýninguna Sögur af nautum.

Á vef List fyrir alla segir um leikritið:
Sögur af nautum er tónlistar/leiklistar bræðingur þar sem sagðar eru sögur af spænska nautinu Ferdinand og íslenska nautinu sem pissaði á eldinn í sögunni um Búkollu. Sagan af Ferdinand er sögð í gegnum tónsmíð Alan Ridout fyrir fiðlu og sögumann/leikara. Þar fær fiðluleikarinn heldur betur að spreyta sig á flóknum spænskum rythmum og fingraleikfimi og leikarinn bregður sér í hlutverk hins huglausa Ferdinands sem vill ekki vera í nautaati, heldur bara lykta af fallegum blómum og leggja sig í sólinni.

Hin sagan er af nautinu sem pissaði á eldinn í sögunni um Búkollu, en það var enginn annar en Gufunesbolinn. Bolinn er ekki sáttur með þessa útgáfu af Búkollu sem allir þekkja og telur sig vera hina sönnu hetju í sögunni.

Í verkinu koma ýmis hljóðfæri við sögu, fiðla, gítar, trompet og slagverk og tekur sýningin eina kennslustund eða um 30 – 40 mínútur.

Sýningin var hin skemmtilegasta og voru nemendur himinlifandi með hana.

Vallaskóli 2019. List fyrir alla. (IG)
Vallaskóli 2019. List fyrir alla. (IG)