Landsátak gegn einelti

Dagurinn í dag, 8. nóvember, er helgaður baráttu gegn einelti. Um er að ræða landsátak og að sjálfsögðu eiga allir að taka þátt og sameinast í verki.

Í Vallaskóla ætlum við að mynda kærleikskeðju innanhúss þannig að allir í skólanum taka þátt.

Á heimasíðu menntamálaráðuneytisins má m.a. lesa:

,,Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hefur ákveðið að helga  8. nóvember ár hvert baráttunni gegn einelti.  Slíkur baráttudagur var fyrst haldinn árið 2011 og  markmiðið með deginum er og var  að vekja sérstaka athygli  á málefninu. Undirritun fulltrúa félaga, samtaka og opinberra stofnana á þjóðarsáttmála gegn einelti var þar einn liður. Sáttmálinn er einnig grunnur að frekari vinnu, við hann má bæta og miða í þeim efnum við þarfir þeirra fjölmörgu félaga, samtaka og stofnanna er undirrituð sáttmálann í Höfða í fyrra.“

Ennfremur …

,,Verkefnastjórn um aðgerðir gegn einelti hvetur eindregið til þess að sem flestir undirriti sáttmálann og sýni þar með hug sinn í verki. Það verður hægt að gera rafrænt á forsíðu nýrrar og breyttrar  heimasíðu verkefnastjórnar sem opnuð verður innan skamms. Slóðin er/verður www.gegneinelti.is og sáttmálinn mun blasa við á forsíðu vefsins.“