Kveiktukeppni milli kennara og nemenda

2015-04-15 12.35.55Miðvikudaginn síðast liðinn var efnt til keppni milli sigurliðs nemenda í Kveiktu, 1o. KH, og úrvalsliðs kennara. Það er skemmst frá því að nemendur mörðu sigur eftir æsispennandi keppni. Lokatölur urðu 20 stig nemenda á móti 18 stigum kennara. Bar liðsmönnum kennaraliðsins saman um að úrslitum hafi ráðið snerpa nemenda á bjöllunni. Nemendur eiga heiður skilið fyrir drengilega keppni og ljóst að kennarar þurfa að æfa snerpuna.