Framhaldsskólakynning

Þriðjudaginn 22. janúar nk. verður kynning á starfi framhaldsskólanna, Fjölbrautaskóla Suðurlands og Menntaskólans að Laugarvatni.

Kynningin fer fram í Sunnulækjarskóla og hefst kl. 18:00 í Fjallasal. Hún er ætluð nemendum í 10. bekk og forráðamönnum þeirra. Að kynningunni standa fulltrúar hvors skóla fyrir sig.

Það verða þau Agnes Ósk Snorradóttir, náms- og starfsráðgjafi og Björgvin E. Björgvinsson, sviðsstjóri sem sjá um kynningu FSu en Gríma Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi og Freyja Rós Haraldsdóttir, kennari sem sjá um kynningu ML.

Við hvetjum alla til þess að nýta sér kynningarnar á starfi skólanna. Kynningarnar gagnast líka þeim sem hafa hugsað sér að hefja nám við aðra framhaldsskóla en þessa tvo.