Fræðslufundur um nýja aðalnámskrá

Ný aðalnámskrá grunnskóla boðar talsverðar breytingar og uppstokkun á starfsháttum og inntaki náms á íslandi. Af þeim sökum standa Heimili og skóli og SAFT fyrir kynningarfundum víðs vegar um landið árið 2013 þar sem foreldrum er boðið að koma og fræðast um nýja námskrá.

Fundur verður haldinn á Selfossi þriðjudaginn 10. september kl. 19.30 á sal Sunnulækjarskóla.

Á kynningunum verður farið í eftirfarandi atriði:

  • Grunnþættir menntunar
  • Ný og fjölbreytt vinnubrögð
  • Hæfni og lykilhæfni
  • Nýtt námsmat
  • Skörun hæfniþrepa

Samhliða fundunum verður fjölbreytt fræðsluefni birt á vef Heimili og skóla.