https://nicolekolenda.com/team-collaboration/

Forvarnardagurinn 2019

Forvarnadagurinn í Sveitarfélaginu Árborg var haldinn miðvikudaginn 2. október

https://nicolekolenda.com/team-collaboration/
https://nicolekolenda.com/team-collaboration/

Forvarnadagurinn kallar á aðkomu nemenda í 9. bekk í öllum grunnskólum landsins. Dagurinn er haldinn að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Landlæknisembættið, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Ungmennafélag Íslands og Bandalag íslenskra skáta.

Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá vímuefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu.

Líkt og undanfarin ár var 9. bekkingum í Sveitarfélaginu Árborg boðið upp á sameiginlega dagskrá, sem unnin er í samstarfi Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri, Sunnulækjarskóla, Vallaskóla, Umf. Selfoss og félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz.

Markmið með sameiginlegri dagskrá er að standa fyrir metnaðarfullum viðburði á forvarnadeginum, að hugsa heildstætt í tómstunda- og skólastarfi og efna til hópeflingar og samstöðu meðal ungmenna í sveitarfélaginu. Nemendur sem taka þátt eru um 150 talsins.

Eftirfarandi 6 stöðvar voru í boði fyrir nemendur:

  1. Zelsiuz – mannréttindi og lýðræði, umsjón Magnús Sigurjón Guðmundsson
  2. Sigtúnsgarður – kynning á Björgunarfélagi Árborgar, umsjón Jóhann Valgeir Helgason.
  3. World Class – kynning á DWC, umsjón Nadía Björt Hafsteinsdóttir.
  4. Kjallari Vallaskóla (gengið inn um aðalinngang) – fræðsla um skaðsemi vímuefna o.fl. í umsjá lögreglu.
  5. Íþróttahús Vallaskóla – kynning á Cross fit Selfoss, umsjón Árni Steinarsson.
  6. Anddyri Vallaskóla – verkefnavinna tengd forvarnardeginum.

Dagurinn var vel heppnaður í alla staði og almenn ánægja með framtakið.