Beint á leiðarkerfi vefsins

Skólaslit 2010 - Fréttir

11.6.2010

Skólaslit 2010

Af þessum 112 nemendum útskrifaðist 21 nemandi í desember 2009 og hófu þeir þá fullt nám í Fjölbrautaskóla Suðurlands. Þessir nemendur voru allir með félögum sínum í útskriftinni og fengu skólaskírteini sitt afhent úr hendi skólastjóra. Að auki útskrifaðist einn nemandi úr 9. bekk, Jón Gautason í 9. DS. 

Útskrift 

Jón Gautason ásamt foreldrum sínum.

Skólastjóri Vallaskóla, Guðbjartur Ólason, kom víða við í ávarpi sínu og þakkaði starfsfólki sínu óeigingjarnt starf í vetur og nemendum fyrir ánægjulegt samstarf. Kvaddi hann sérstaklega tvo starfsmenn sem ljúka nú farsælu starfi. Annars vegar var það Málfríður Kolbrún Guðnadóttir, sem hefur starfað við kennslu og skólastjórn á Selfossi í yfir 40 ár, og hins vegar var það Eyjólfur Sturlaugsson fyrrverandi skólastjóri Vallaskóla, nú skólastjóri í Auðarskóla í Búðardal.

Útskrift 

Kolla og Eyjólfur.

Nemendur 10. bekkjar settu glæsilegan svip á þessa hátíðardagskrá. Flutt voru nokkur tónlistaratriði og veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. Sara Árnadóttir flutti frumsamið lag á píanó sem kallast ,,Nýtt upphaf", og 9. bekkingar fluttu skólafélögum sínum tónlistarkveðju við undirleik Roberts Darling skólastjóra Tónlistarskóla Árnesinga.

Útskrift 

Sara Árnadóttir flytur ,,Nýtt upphaf".

Útskrift 

Margrét Rún Símonardóttir 9. HLG, Eva Þorfinnsdóttir stendur með þeim í tónlistarkveðjunni fyrir hönd 10. bekkinga og Bergþóra Rúnarsdóttir 9. HLG. Að auki fluttu þeir Jón Gautason 9. DS og Hákon Gíslason 9. RS sitt hvort lagið.

Sigurður Jesson umsjónarkennari flutti kveðju frá kennurum skólans og Ester Rún Antonsdóttir, formaður nemendafélags Vallaskóla (NEVA), gerði slíkt hið sama fyrir hönd nemenda.

Útskrift 

Sigurður Jesson.

Útskrift 

Ester Rún. 

Nemendur fengu vitnisburð sinn afhentan og græðling með því fyrirheiti að ,,mjór er mikils vísir". Að útskrift lokinni var hátíðargestum boðið að þiggja veitingar í boði foreldra útskriftarnema. Þá gefst fólki tækifæri á að eiga notalega stund saman, spjalla og kveðjast áður en gengið er út í sumarið.

Útskrift 

Sólveig Sigmarsdóttir umsjónarkennari að kveðja Elías Arnþór.

Útskrift 

Hátt í 500 manns gæddu sér á ljúffengum veitingum.

 

Hér má sjá nokkra starfsmenn Vallaskóla. Frá vinstri: Hanna, Helga Salbjörg, Steingerður, Árni, Binna og Unnur.

Viðurkenningar voru veittar í öllum fögum og voru það bókargafir eins og hefð er fyrir. Viðurkenning fyrir heildarárangur kom í hlut Eygerðar Jónasardóttur en þess má geta að hún hóf nám í 10. bekk ári fyrr en bekkjarfélagar sínir.

Útskrift 

Eygerður Jónasardóttir.

Viðurkenningar á skólaslitum 2010 fyrir góðan árangur á grunnskólaprófi í lok 10. bekkjar

Íslenska:  Sólveig Elísabet Guðbjörnsdóttir 10. MA.                                   

Danska:  Hanna Vilhjálmsdóttir 10. MA (Gefandi: Danska sendiráðið).

Norska:  Erna Ríkharðsdóttir 10. TS (Gefandi: Tungumálaver Laugalækjarskóla).

Enska:  Imesha Chaturanga 10. MA.

Stærðfræði:  Karólína Maríudóttir 10. SS.

Náttúrufræði:  Eygerður Jónasardóttir 10. PÖA.

Samfélagsfræði:  Erna Ríkharðsdóttir 10. TS.

Verkmennt:  Hugrún Hlín Gunnarsdóttir 10. MA.

Textílmennt:  Gintare Pigagaite 10. TS.

Heimilisfræði:  Gerda Taujanskyte 10. TS (gefandi: Kvenfélag Selfoss).

Íþróttir:  Kristrún Steinþórsdóttir 10. SS og Svavar Ingi Stefánsson 10. MA.

Framfarir í námi og ástundun:  Viktor Elís Magnússon 10. TS.

Ástundun og samviskusemi í námi:  Guðný Lilja Torfadóttir 10. TS, Franziska Jóney Pálsdóttir 10. PÖA, Guðmundur Bjarnason 10. SS, Bjarkey Líf Ásmundsdóttir 10. SHJ og Imesha Chaturanga 10. MA.

Hugprýði og dugnaður í skólastarfinu:  Áskell Ingi Eyjólfsson 10. SS.

Starfsnám:  Jón Marel Magnússon 10. SS.

Heildarárangur:  Eygerður Jónasardóttir 10. PÖA.


Viðburðir

Viðburðir

8. september 2010
9. september 2010
13. september 2010



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda

Flýtileiðir


Mynd