Beint á leiðarkerfi vefsins

Útskriftarferð í 10. bekk - Fréttir

25.5.2010

Útskriftarferð í 10. bekk

Ferðin gekk í alla staði vel, héldum sem leið lá að Borg í Grímsnesi þar sem við gistum í Félagsheimilinu. Eftir að allir höfðu komið sér fyrir hófst kvöldmatur, krakkarnir voru með pizzur, samlokur, núðlur og nokkrir drengir voru með grill og hamborgara. Eftir matinn var farið í sund og við vorum í lauginni langt fram á kvöld. Sundlaugarstarfsmaður var mjög ánægður með hópinn og hrósaði þeim fyrir góða hegðun. Eftir sund var hressing í boði foreldra (þ.e. við fengum brauð, álegg og ávexti hjá Krónunni, Bónus og MS). Eftir það var frjáls tími en seint um síðir áttu krakkarnir að taka á sig náðir. Þau voru nú misviljug til þess eins og gefur að skilja og líklegast sváfu sumir ekki neitt þá nóttina.  

Á fimmtudagsmorguninn var ræs kl. 8.00. Það var með ólíkindum hvað allir spruttu á fætur, borðuðu morgunmat, gengu frá og þrifu húsið. Rútan fór frá Félagsheimilinu Borg kl. 9.30. Haldið var að Úlfljótsvatni og þar tóku hressir skátar við hópnum og stýrðu deginum. Þar var margt skemmtilegt í boði. Kl. 16.00 var svo haldið heim á Selfoss með þreytta og glaða krakka. Það skal tekið fram að skátarnir höfðu orð á því hversu skemmtilegur og góður hópur þetta væri.

Fyrir hönd tengla í 10. bekk - Inga Margrét Skúladóttir.


Viðburðir

Viðburðir

8. september 2010
9. september 2010
13. september 2010



Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta og lesblinda

Flýtileiðir


Mynd