Fréttir
3.9.2010
Útivistartíminn breytist
Útivistartími barna og unglinga breytist venju samkvæmt 1. september. Þá mega 12 ára börn og yngri vera úti til kl. 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til kl. 22.00 en bregða má út af reglunni, í tilviki 13-16 ára hópsins, ef þau eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu.
27.8.2010
Nemendur bćtast viđ
Núna eru í skólanum 584 nemendur í 27 bekkjardeildum. Það eru mun fleiri nemendur en reiknað var með en það hafa bæst við 32 nemendur bara í ágúst.
26.8.2010
Haustönn
Haustönnin er byrjuð af fullum krafti í Vallaskóla eftir skólasetningu sl. mánudag. Minnum á að matseðlar fyrir ágúst- og septembermánuð eru komnir á heimasíðuna.
23.8.2010
Útileikfimi og íţróttakennsla
5. - 10. bekkur verður í útileikfimi frá 24. ágúst - 10. september
M.a. verður farið í fótbolta, frjálsar, ratleiki og hlaup. Einnig má fræðast um íþróttaiðkun í Vallaskóla með því að lesa dreifibréf íþróttakennara, sjá hér.
19.8.2010
Pöntun á mat í skólamötuneytinu - breyting
17.8.2010
Innkaupalistar
9.8.2010
Skólasetning skólaáriđ 2010-2011
Nemendur mæti í skólann mánudaginn 23. ágúst sem hér segir:
2. , 3. og 4. bekkur - kl. 9.00 Salur Sandvík
5., 6., og 7. bekkur - kl. 10.00 Austurrými Sólvöllum
8., 9., og 10. bekkur - kl. 11.00 Austurrými Sólvöllum
Fyrir skólabyrjun verður haft samband við forráðamenn nýrra nemenda.
11.6.2010
Afgreiđslutími skrifstofu
Skrifstofa skólans verður opin til og með 16. júní. Skrifstofan opnar aftur 6. ágúst kl. 10 eftir sumarleyfi. Skólavistun er opin til og með 16. júní og opnar aftur 4. ágúst eftir sumarleyfi. Hér til hliðar á heimasíðunni má nú nálgast skóladagatalið fyrir árið 2010-2011.
Flýtileiđir
Mynd







