Rölt – niðurröðun
Kæru foreldrar/forráðamenn. Þá er komið að hinu stórskemmtilega foreldrarölti.
Meðfylgjandi er listi yfir þá foreldra sem beðnir eru að rölta hverju sinni. Ef tímasetningin hentar ekki biðjum við ykkur um að hafa samband við einhvern annan í bekknum og skipta um tíma. Þeir foreldrar sem ekki eru skráðir á rölt mega búast við því að við þá verði haft samband.
Við minnum á mikilvægi foreldrarölts, sýnum samhug, látum okkur málið varða. Með sameiginlegu átaki gerum við bæjarfélagið okkar betra og öruggara fyrir börnin okkar.
Með bestu kveðju, stjórn Hugvaka.
Mæta skal á lögreglustöðina kl. 23.00.
Leiðbeiningabréf, sjá hér.
Skólaárið 2011-2012




