Foreldrarölt

Foreldrarölt – til hvers?

Tilgangurinn með foreldrarölti er að varna því að unglingar lendi í vanda og koma í veg fyrir hópamyndanir eftir löglegan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem unglingar hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Með þessu minnkum við líkurnar á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða. Slík nærvera gefur unglingunum líka tækifæri til að leita aðstoðar fullorðinna ef á þarf að halda.

Á ég að gæta bróður míns?

Margir foreldrar hugsa sem svo: Barnið mitt er ekki úti á kvöldin. Ég sé um minn ungling og af hverju ætti ég að vera að eyða tíma mínum í að passa annarra manna börn?

Við þessu er til einfalt svar:

Með því hefur þú áhrif á það félagslega umhverfi sem þú og barnið þitt býr við. Því færri sem nota vímuefni, eru lagðir í einelti eða beittir ofbeldi af öðru tagi, því betra og öruggara er það umhverfi sem unglingurinn þinn býr við. Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi, hættum þess og hvar unglingar geta haft athvarf til neyslu óæskilegra efna og hópamyndunar.

Nærvera fullorðinna hefur áhrif: 

  • Ósætti milli einstaklinga eða hópa þróast síður yfir í alvarlegt ofbeldi 
  • Drykkja eða önnur vímuefnaneysla fer síður fram þar sem fullorðnir eru nærstaddir. 
  • Þeir sem selja áfengi eða önnur vímuefni láta síður sjá sig ef fullorðnir eru til staðar.

 Hvernig á að hegða sér á foreldrarölti? 

  • Við eigum að vera sýnileg. Merkjum okkur með barmmerkjunum. 
  • Við þurfum að vera til staðar ef unglingarnir leita til okkar en forðumst að stjórna þeim. 
  • Við þurfum að geta hlustað og leiðbeint án þess að stjórna. 
  • Við eigum helst aldrei að vera færri en fimm saman. 
  • Við hringjum á lögreglu ef upp koma árekstrar, ofbeldi, slys, vímuefnaneysla og – sala eða annað sem krefst afskipta. Tökum fram að við erum foreldrar á rölti. 
  • Við ræðum ekki málefni einstaklinga sem við hittum á foreldrarölti við óviðkomandi.

Við viljum minna foreldra á að ef viðkomandi getur einhverra hluta vegna ekki gengið þá vinsamlegast útvegið einhvern annan til að leysa ykkur af. Hafið endilega samband við samröltara” hverju sinni og hvetjið til göngu. Foreldrar barna sem eru skráð í FSu eru engu að síður beðnir um að rölta, fyrst og fremst er farið eftir aldri barns en ekki hvar það er statt námslega. Vinsamlega sendið athugasemdir á netfang formanns Hugvaka og við munum taka þær til skoðunar.