Eina þjóðin sem hleypur

Eins og flestir vita þá hefur ,,Norræna skólahlaupið hefur farið fram í grunnskólum landsins óslitið frá árinu 1984 og lengstan hluta þess tíma verið í umsjón ÍSÍ.

Á síðustu árum hefur Ísland verið eina þátttökuþjóðin á Norðurlöndunum og nafn hlaupsins því ekki endurspeglað verkefnið. ÍSÍ hefur því ákveðið að breyta nafni hlaupsins og varð Ólympíuhlaup ÍSÍ ofan á. Þátttaka íslenskra grunnskólanemenda hefur verið mjög góð og almenn í gegnum árin en hefur náð nýjum hæðum á undanförnum árum. Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er eins og áður leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.“ (Heimild: http://www.isi.is/fraedsla/olympiuhlaup-isi/ ).

Mynd: Vallaskóli, Guðbjörg Sigurdórsdóttir (2019).
Mynd: Vallaskóli, Guðbjörg Sigurdórsdóttir (2019).

Hér að ofan má sjá myndir frá hlaupinu sem fram fór í Vallaskóla í morgun. Þátttaka nemenda var prýðileg og septemberveðrið ekki síðra.

Nánar má fræðast um hlaupið á vef Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, sjá hér.