Árshátíð unglingastigs

Árshátíð í 8., 9. og 10. bekk Vallaskóla verður haldin í hótelinu á Selfossi, fimmtudaginn 24. nóvember nk.

Hátíðarkvöldverður fyrir 10. bekk

Kvöldið hefst á hátíðarkvöldverði fyrir 10. bekk. Húsið opnar kl. 18.00 en borðhald hefst kl. 18:30. Boðið verður upp á tveggja rétta kvöldverð.

Matseðill fyrir 10. bekk:

Grilluð kjúklingabringa með rótargrænmeti og salvíu-rjómasósu.
Súkkulaðikaka með sunnlenskum ís.

Hátíðardansleikur fyrir 8.-10. bekk:

Hátíðardansleikur verður síðan í hótelinu fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Dansleikurinn hefst um kl. 20.30 og lýkur á miðnætti. Nafn hljómsveitarinnar sem leikur fyrir dansi er leyndarmál þetta árið. Nemendahljómsveitin Aragrúi hitar upp. Spennandi kennaratriði verður á boðstólnum. Sjoppa verður á staðnum.

Hætt verður að hleypa inn í húsið kl. 21.30. Á dansleiknum mun fara fram krýning á herra og ungfrú Vallaskóli.

Ljósmyndari verður á staðnum eins og undanfarin ár. Hægt er að kaupa myndir síðar hjá sjálfum ljósmyndaranum. Það verður auglýst síðar.

Miðasala fer fram í skólanum dagana 21. nóvember til og með 23. nóvember.
Verð fyrir kvöldverð og ball er kr. 5.000. (10. bekkur)
Verð fyrir dansleik er kr. 1.800,-. (8.-10 bekkur) – húsið opnar kl. 20.00 fyrir nemendur í 8. og 9. bekk.

Dansleik lýkur um kl. 24.00. MIKILVÆGT ER AÐ FORELDRAR SJÁI UM AÐ BÖRN SÍN FARI BEINT HEIM AF DANSLEIKNUM.

Föstudaginn 25. nóvember, daginn eftir árshátíð, er frí í fyrstu tveimur tímunum (8.10-9.30) hjá nemendum í 8.-10. bekk og svo taka jólaskreytingar við eftir kl. 9.50.

Kærar kveðjur.
Nemendafélag Vallaskóla – NEVA, umsjónarmaður félagsstarfs, og stjórnendur Vallaskóla.