Annaskipti í nóvember

Fimmtudaginn 19. nóvember er starfsdagur í Vallaskóla. Nemendur eru þá í fríi.

Föstudaginn 20. nóvember er foreldradagur. Nemendur og forráðamenn þeirra koma þá til foreldraviðtals hjá umsjónarkennara. Farið verður yfir námsmat, námslega stöðu og líðan. Mætt er skv. viðtalsyfirliti umsjónarkennara. 

Nemendur í 10. bekk verða með vöfflusölu og kökubasar í skólanum (í anddyrinu á Sólvöllum og í mötuneytinu) þennan dag til styrktar skólaferðalagi sínu í vor. Styrkjum gott málefni og njótum veitinga um leið. Vinsamlegast athugið að einungis er tekið við reiðufé.

• Foreldrar eru beðnir um að huga að óskilamunum.

Mánudaginn 23. nóvember mæta nemendur aftur skv. stundaskrá. Vetrarönn hefst.