Af hverju þarf ég að lesa?

Haldið fimmtudaginn 12. nóvember 2015 kl. 17:30 í Ráðhúsi Ölfuss, Hafnarbergi 1, 815 Þorlákshöfn. 

Dagskrá
17:30 – Gylfi Jón Gylfason: Læsisátak stjórnvalda
17:50 – Margrét Tryggvadóttir: Skipta barnabækur máli?
18:10 – Gerður Kristný: „Bækur breyta heiminum“.
18:30 – Hlé 

18: 45 – Lára Aðalsteinsdóttir: „Komdu með á hugarflug“.
19:05 – Andri Snær Magnason:
19: 25 – Spurningar úr sal.
20:00 – Dagskrárlok

Bókabæirnir austanfjalls vilja auka hróður barnabókarinnar og vekja athygli á mikilvægi barnabóka í eflingu læsis. Því munu þeir standa fyrir málþinginu „Af hverju þarf ég að lesa?“ sem er sjálfstætt framhald Barnabókahátíðar Bókabæjanna austanfjalls sem haldin var í í Bókabæjunum austanfjalls 18. og 19. september 2015. Inntak málþings er barnabókmenntir og læsi – hlutverk barnabókarinnar í eflingu læsis. Spurningunum „af hverju erum við að þessu?“ og „af hverju þurfa börn að lesa?“ verður svarað frá hinum ýmsu sjónarhornum.