21. febrúar 2013 Af hverju er gott að drekka vatn?

Kæru foreldrar/forráðamenn

Hér fáið þið nokkra punkta um af hverju við eigum að velja vatn til drykkjar umfram aðrar drykkjarvörur.

Af hverju er gott að drekka vatn?

Stærstur hluti mannslíkamans er vatn en nægilegt magn vökva er nauðsynlegt til að viðhalda vökvajafnvægi líkamans og eðlilegri líkamsstarfsemi. Vatn er svalandi drykkur án viðbætts sykurs, sætuefna, sítrónusýru (E330) og rotvarnarefna og því besti drykkurinn við þorsta og til að stuðla að hæfilegri líkamsþyngd. Vatn skemmir ekki tennur og eyðir ekki tannglerungi. 

Hvað þurfum við að drekka mikið vatn?

Nægilegt magn vökva er nauðsynlegt fyrir eðlilega líkamsstarfsemi. Vökvaþörf er breytileg og ræðst meðal annars af aldri, líkamsstærð, veðri og því hversu mikið menn hreyfa sig. Á meðan 1-1,5 lítrar af vökva úr drykkjum á dag ættu að duga flestum fullorðnum er vökvaþörf þeirra, sem hreyfa sig mikið, oft meiri. Líkaminn fær vatn bæði úr mat og drykk. Á Norðurlöndum veitir daglegt fæði um 1–1,5 lítra af vatni en því til viðbótar er algengt að um það bil 1–2 lítrar af vatni komi úr drykkjum.

Vökvatap sem samsvarar því að 1–2% líkamsþyngdar tapist veldur höfuðverk, þreytu og lystarleysi og fari vökvatapið í 3–5% líkamsþyngdar dregur úr líkamsgetu. Ofdrykkja vatns er hins vegar heldur ekki heppileg og getur valdið vanlíðan ef þynning líkamssalta verður of mikil.

 Vatn er vinsælasti drykkurinn

Vatnsdrykkja hefur aukist mikið undanfarin ár jafnt hjá börnum sem fullorðnum og nú er svo komið að vatn er vinsælasti drykkurinn þegar á heildina er litið. En þrátt fyrir vaxandi vinsældir vatnsins drekka Íslendingar þó mikið af gosdrykkjum í samanburði við nágrannaþjóðirnar. Unglingsstrákar drekka mest af gosi, eða að meðaltali tæpan lítra á dag. Þótt unglingsstúlkur drekki minna er neysla gosdrykkja of mikil hjá flestu ungu fólki.

Gott drykkjarvatn beint úr krananum

Á Íslandi höfum við víðast hvar gott aðgengi að drykkjarvatni beint úr krananum! Gott er því að hafa vatnsbrúsa við höndina sem auðvelt er að fylla á og hafa með sér í kennslutímum. Til viðbótar við kranavatnið er kolsýrt vatn góður kostur og eins er kjörið að bragðbæta vatnið t.d. með ávaxtasneiðum. Þegar vatn er valið í stað annarra drykkja, s.s. gosdrykkja, safa og mjólkurdrykkja, er auðvelt að draga úr heildarmagni hitaeininga. Það er því skynsamlegt að spara bæði peninga og hitaeiningar með því að velja sem oftast vatn til drykkjar.

(Fengið af vefsíðu landlæknisembættis úr bæklingnum Ráðleggingar um mataræði og næringarefni)

 

Njótið dagsins

Ásdís Björg og Guðmundur Sigmars

f.h. Stýrirhóps Heilsueflandi skóla í Vallaskóla.