8 krakkar úr sama bekk í úrvalshópi í handbolta

Um síðastliðna helgi stóð Handknattleikssamband Íslands fyrir æfingabúðum fyrir úrvalshóp stráka og stelpna fædd 1998.Selfoss átti átta fulltrúa í þessum hópi þau voru: Karen María Magnúsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Jana María Guðmundsdóttir, Ísabella Rós Ingimundardóttir, Andri Páll Ásgeirsson, Trausti Magnússon, Aron Óli Lúðvíksson og Teitur Örn Einarsson.

Það sem er skemmtilegt við þetta er að þessir duglegu krakkar eru öll í sama bekk, 8. SAG í Vallaskóla, og sá bekkur hlýtur því að teljast handboltabekkur Íslands fyrir vikið!

Umsjónarkennarinn þeirra er Sigríður Anna Guðjónsdóttir, sem reyndar er frjálsíþróttaþjálfari líka utan kennslustarfanna.